Landsbréf hf. hafa birt árshlutareikning fyrir fyrri hluta ársins 2026. Helstu niðurstöður voru þessar:
- Hagnaður Landsbréfa eftir skatta var tæpar 603 milljónir króna á fyrri hluta ársins 2026 samanborið við tæpar 457 milljónir króna fyrir sama tímabil árið áður.
- Hreinar rekstrartekjur námu 1.367 milljónum króna á fyrri hluta ársins 2026 samanborið við 1.142 milljón króna fyrir sama tímabil árið áður.
- Eigið fé í lok tímabils var rúm 3.971 milljón króna samanborið við rúmar 4.368 milljónir króna í árslok 2025, en félagið greiddi móðurfélagi sínu Landsbankanum 1.000 milljóna króna arðgreiðslu í maí síðastliðnum. Eiginfjárhlutfall Landsbréfa var 74,29% við lok fyrri árshelmings.
Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa:
„Rekstur Landsbréfa gekk vel á tímabilinu og hagnaður á tímabilinu endurspeglar traustan rekstur félagsins. Markaðsaðstæður héldu áfram að vera krefjandi á fyrri hluta ársins og væntingar um lægri verðbólgu hafa ekki gengið eftir og vaxtastig hefur haldist hátt. Það er sameiginlegt verkefni allra að stuðla að lægri verðbólgu til að tryggja stöðugleika til framtíðar, ekki hvað síst nú þegar glögg merki um samdrátt eru til staðar í hagkerfinu. Ávöxtun sjóða Landsbréfa var misjöfn á tímabilinu eftir tegundum sjóða en ásættanleg í ljósi markaðsaðstæðna. Landsbréf eru sem fyrr leiðandi sjóðastýringarfyrirtæki á Íslandi og rekur fjölbreytt úrval verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða auk þess sem félagið sinnir afmörkuðum eignastýringarverkefnum fyrir lífeyrissjóði og fleiri stærri fjárfesta og erum við þakklát fyrir það traust sem þúsundir viðskiptavina hafa sýnt okkur á liðnum árum.“
Nánari upplýsingar um árshlutareikning Landsbréfa veitir Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa, í síma 410 2500.
Comments (0)
Login to join the conversation
Login / RegisterNo comments yet. Be the first to comment!